Vegan ostakaka

Bakstur Kökur

  • Miðlungs
  • Vegan ostakaka nutella
  • Vegan: Já
  • Mjókurlaust: Já
  • Eggjalaust: Já

Uppskrift

Dýrindis ostakaka, með súkkulaðihnetusmjöri og fullt af ferskum berjum.  Tilvalinn páskadesert.

Þessa ostaköku væri snjallt að baka daginn áður og geyma í kæli. Og skreyta síðan með fullt af ferskum berjum þegar hún er borin fram.
Kakan geymist í kæli í viku án berja, svo það er alveg óhætt að baka hana fram í tímann.


  • Botninn:   
  • 75g haframjöl
  • 100g  malaðar möndlur eða hnetur
  • 10 döðlur, smátt skornar
  • 60g kókosolía
  • ½ tsk sjávarsaltflögur

  • Fyllingin:
  • 150g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klst
  • 200g vegan rjómaostur
  • 250g kókosmjólk
  • 225g hlynsíróp
  • 2 msk sítrónusafi
  • 2 msk kókosolía
  • 2 msk maizenamjöl
  • 1 tsk vanilludropar
  • ½ tsk sjávarsaltflögur

  • Ofan á:
  • Fersk ber, t.d. hindber, bláber eða jarðaber
  • Vegan súkkulaðihnetusmjör, helst lífrænt.
  • Heimagert EÐA Finnið tilbúið í heilsuhillunum.
  • Hægt að nota sultu í staðinn fyrir súkkulaðismjör

ATH Munið að leggja kasjúhneturnar fyrir fyllinguna í bleyti í 2 klst áður en baksturinn hefst.

Botninn:
Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél og maukið þar til þetta verður að klístruðu deigi.
Þjappið niður í smurt form sem er um 26 cm í þvermál. Gott að nota smelluform.
Forbakið við 160°C í 10 mín.
Látið kólna áður en fyllingunni er hellt yfir.


Fyllingin:
Hellið vatninu af kasjúhnetunum.
Setjið allt hráefnið í blandara og blandið þar til silkimjúkt. (Hægt að nota matvinnsluvél).
Hellið fyllingunni yfir forbakaða botninn og bakið við 160°C í 55 mín.
Látið kólna í a.m.k. 2 klst í kæli, en má geyma í kæli í viku þess vegna.


Ofan á:
Smyrjið súkkulaðismjörinu yfir kökuna.
Raðið berjunum ofan á.
Njótið!