Vefjur m/ tahini sósu

Vefjur

  • 2 manns
  • Auðvelt
  • Vefja með eggaldin og tahinisósu
  • Vegan: Já

Uppskrift

  • 2 vefjur
  • 1 eggaldin, skorið í ½ cm þunnar sneiðar
  • 1 rauð paprika, skorin í 2x2cm bita
  • 2 msk ólífuolía
  • 1 tsk cuminduft
  • 1 tsk reykt paprikuduft
  • 1 tsk sjávarsaltsflögur
  • nokkur grænkálsblöð
  • hnefafylli af klettasalati
  • 2-3 msk pistasíuhnetur
  • Tahinisósa

  • 1 dl tahini
  • 75 ml vatn
  • 3 msk sítrónusafi
  • 2 msk ólífuolía
  • 1 msk hlynsíróp
  • 2 hvítlauksrif
  • ½ - 1 tsk sjávarsaltflögur
  • ¼ tsk svartur pipar

Hitið ofninn í 180°C.

Setjið bökunarpappír í ofnskúffu og leggið eggaldinsneiðarnar ofan á ásamt paprikubitunum. Kryddið með cumindufti, reyktu paprikudufti og sjávarsalti. Skvettið ólífuolíu yfir.

Bakið í ca 15-18 mín við180°C eða þar til eggaldinið er gegnum bakað.

Á meðan grænmetið er að bakast er upplagt að búa til tahinisósuna.

Allt innihald í tahini sósuna er sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. 
Ef sósan er of þykk má þynna hana með smá vatni.
Smakkið til með sítrónusafa og salti.

Rífið síðan grænkálið í passlega stóra bita, skerið klettasalatið í tvennt og blandið saman við grænkálið. Veltið kálinu upp úr tahinisósu.

Smyrjið tvær tortillur með tahinisósu, leggið eggaldinsneiðarnar ofan á sósuna, setjið svo slatta af káli (sem búið er að velta upp úr tahinisósu) þar ofan á, síðan paprikubitana og endið á að strá söxuðum pístasíuhnetum efst.

Lokið vefjunum og setjið á heita pönnu, ca ½ mín á hvorri hlið.

Njótið!