Hálfmánar með sætkartöflufyllingu
- Miðlungs
- Vegan: Já
- Hráfæði: Nei
- Viðbættur sykur: Nei
Uppskrift
- Sætkartöflufylling:
- 350g sætar kartöflur í teningum (bakið í ofni)
- 100g rjómaostur (vegan)
- 60g þurristaðar pekanhnetur, gróft saxaðar
- 1 dl kóríander chutney (sjá uppskrift)
- 1 tsk cayenne pipar
- sjávarsaltflögur
Kóríander chutney:- 1 búnt ferskur kóríander (ca 25g)
- 3-4 mintublöð
- 1-2 msk engiferskot
- 1 grænn chilli, saxaður
- 2 msk sítrónusafi
- 2 msk rauðlaukur, afhýddur og gróft saxaður
- 100g ristaðar kókosflögur
- 2 hvítlauksrif
- 1 tsk cuminduft
- 200 ml jómfrúarólífuolía
Hálfmánadeig:- 440g spelt (fínt og gróft til helminga)
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk sjávarsaltflögur
- 1 tsk hvítlauksduft
- 3 msk jómfrúarólífuolía
- 325-350 ml heitt vatn
Forhitið ofninn í 180°C. Skerið sætar kartöflur niður og bakið í 20-30 mín.
Fyrir kóríander chutney:
Á meðan sætu kartöflurnar bakast, útbúið kóríander chutney. Setjið allt hráefnið í kóríander chutney í matvinnsluvél og maukið gróft.
Fyrir sætkartöflufyllinguna:
Þegar sætu kartöflurnar eru tilbúnar, setjið allt hráefnið í sætkartöflufyllinguna í skál og “klípið” eða hrærið saman.
Fyrir hálfmánadeigið:
Setjið þurrefnin í skál og blandið saman, bætið olíu og vatni út í og hnoðið.
Stráið smá spelti á borðið og fletjið deigið út.
Notið eitthvað hringlaga, t.d. undirskál eða lítinn kökudisk til að skera út hringina. Það fer eftir stærðinni á hringnum hvað þið fáið marga hálfmána.
Gott er að nota disk sem er u.þ.b. 12 cm í þvermál, þá fáið þið u.þ.b. 12 hálfmána úr þessu deigi.
Setjið 2 msk af fyllingu á annan helminginn af hringnum, skiljið eftir 1 cm að kantinum svo hægt sé að loka. Lokið hálfmánanum og notið annað hvort fingurna eða gaffal til að þrýsta deiginu saman.
Bakið við 200°C í 12-14 mín eða þar til hálfmánarnir hafa fengið gylltan lit.
Gott að vefja þeim inn í viskastykki til að halda rakanum í deiginu.