Rauðrófu og kjúklingabauna skál

Skálar

  • 2 manns
  • Miðlungs
  • Vegan skál, kjúklingabaunir rauðrófur og blómkál
  • Vegan: Já

Uppskrift

Ljúffeng og nærandi skál með grænmeti og kjúklingabaunum og dásamlegri dressingu.
  • 300g rauðrófur, afhýddar og skornar í báta
  • 1 tsk fennelduft
  • ½ tsk cuminduft
  • ½ tsk sjávarsalt flögur 

  • 300g blómkál, skorið í passleg blóm eða bita
  • 1 tsk garam masala
  • ½ tsk sjávarsaltflögur 

  • 1 dós lífrænar forsoðnar kjúklingabaunir, (hellið vökvanum af)
  • 1 tsk reykt paprika
  • ½ tsk chili flögur
  • 1 tsk sjávarsalt flögur
  • 2-3 msk ólífuolía 

  • 1 avókadó, afhýtt, steinninn fjarlægður og skorið í fernt
  • 2 gulrætur, skornar julienne i mjög þunna strimla
  • kjarnarnir úr ½ granatepli
  • 1 hnefi spínat eða annað grænt kál/salat 

  • Sósa:
  • 100g vegan sýrður rjómi
  • 1 hvítlauksrif, pressað
  • 1 tsk sinnep
  • 1 tsk hlynsíróp
  • ½ tsk sjávarsaltflögur

Hitið ofninn í 200°C.

Setjið bökunarpappír í ofnskúffu, raðið rauðrófunum á 1/3 hluta ofnskúffunnar, blómkálinu á 1/3 hluta og kjúklingabaununum á 1/3 hluta.

Kryddið rauðrófurnar með fennel, cumin og salti, blómkálið með garam masala og salti, kjúklingabaunirnar með reyktri papriku, chiliflögum og salti og endið á að skvetta olíunni yfir allt.

Bakið við 200°C í 15 – 20 mín.

Á meðan grænmetið og baunirnar eru að bakast þá hrærið öllu saman sem fer í sósuna, skerið gulrætur, avókadó og gerið granateplakjarnana tilbúna.

Skiptið öllu í 2 skálar, setjið sósuna yfir og njótið.