Tófú skál

Skálar Sushi Tófú

  • Miðlungs
  • Vegan: Já

Uppskrift

Ristaða sesam olían okkar og tamari sósan eru frábærar í alls kyns marineringar og sósur. Hér notum við þær ásamt engiferskotinu til að marinera tófú í ljúffenga sushi skál.

  • 200g tófú, skorið í bita og marinerað
  • marinering:
  • 2 msk tamarisósa
  • 1 msk ristuð sesamolía
  • 1 msk engiferskot
  • 1 msk hlynsíróp
  • 1 tsk sítrónusafi

  • 150g hrísgrjón
  • 150g edamame (frosnar baunir)
  • 100g agúrka, skorin í 1x1cm teninga
  • 100g vatnsmelónur, skornar í 2x2 cm teninga
  • 1 avókadó, skorið í 1x1 cm teninga
  • 50g pikklaður engifer
  • 50g radísur, skornar í þunnar sneiðar (t.d. á mandólíni)
  • 2 msk gomasio (sjá uppskrift undir meðlæti-kryddblöndur, eða notið salt og sesamfræ í staðinn)
Tófú:
Blandið marineringunni saman og látið tófúbitana marinerast, t.d. í 30 mín.
Bakið við 200°C í 20 mínútur

Hrígrjón:
Soðin samkvæmt leiðbeiningunum á pakkanum.

Skerið niður grænmetið og hellið soðnu vatni yfir edamame baunirnar.

Setjið í 2 skálar, væna kúlu af hrísgrjónum i miðjuna og raðið grænmetinu og tófúinu í kringum þau.

Setjið smá gómasíó yfir hrísgrjónin. Ef þið eigið ekki gómasíó (uppskrift finnið þið undir meðlæti-kryddblöndur) þá getið þið notað smá salt og sesamfræ í staðinn.