Brokkolíní skál

Skálar

  • Miðlungs
  • Brokkolini skál
  • Vegan: Já

Uppskrift

Nærandi skál með grænmeti, baunum og ljúffengri dressingu
  • 1 sæt kartafla
  • 1 dl soðnar kjúklingabaunir 
  • 1-2 msk ólífuolía 
  • 1 tsk sjávarsaltflögur 
  • 1 tsk karrýduft  
  • 6 brokkolíní sprotar (eða brokkolí)
  • ½ rauðlaukur
  • 1 msk balsam edik 
  • kjarnar úr ¼ granatepli 
  • 3-4 þurrkaðar aprikósur, smátt skornar 
  • 1 msk kapers 
  • 1 msk ristuð sesamfræ
  • Dressing: 

  • 1 dl ólífuolía 
  • ½ - 1 tsk sjávarsaltflögur 
  • nýmalaður svartur pipar 
  • 1 msk sinnep 
  • 1 sítróna, safinn og hýðið
  • ¼ tsk timían 
  • 1-2 hvítlauksrif, marin

Byrjið á að hita ofninn í 180°C.

Afhýðið sætu kartöfluna og skerið í 2x2 cm teninga.

Setjið sætkartöflubitana, kjúklingabaunirnar, ólífuolíu, salt og karrýduft á ofnplötu og bakið við 180°C í ca 20 mínútur eða þar til sætu kartöflurnar eru byrjaðar að fá gylltan lit og eru bakaðar í gegn.

Á meðan ofninn bakar, snöggsteikið brokkolíní á heitri pönnu með smá óífuolíu. Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og setjið laukinn síðan í skál og hellið balsam edikinu yfir og blandið saman.

Allt hráefnið í dressinguna er sett í krukku og hrist saman.

Raðið að lokum öllu fallega í 2 skálar og berið fram með dressingu.