Kókos karrý súpa

Súpur

  • 3-4 manns
  • Thai-supa-5
  • Vegan: Já

Uppskrift

  • 2 msk kókosolía, Himnesk
  • 2 hvítlauksrif
  • 3 límónulauf
  • 1 sítrónugras stöngull
  • 200g hvítkál, niðursneitt
  • 2 gulrætur, skornar í þunnar sneiðar
  • 100-200g sætar kartöflur, skornar í bita
  • 100g kartöflur, skornar í bita
  • 100g blómkál, skorið í litla bita
  • 2 msk rautt thai curry paste
  • 1 msk tómatpúrra, Himnesk
  • 1 msk grænmetiskraftur, Himneskur
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 2 dósir kókosmjólk (800 ml)
  • 250 ml vatn
  • Ofan á:
  • ½ rauðlaukur, skorinn í þunna strimla og steiktur á pönnu
  • ½ paprika, skorin í bita og steikt á pönnu
  • ferskur kóríander
  • sítrónubátar
  • ristaðar kasjúhnetur, Himneskar
Byrjið á að skera grænmetið niður.

Hitið olíu í potti og steikið hvítkál, hvítlauk, límónulauf og sítrónugrasstöngul í 2-3 mínútur.

Bætið restinni af grænmetinu út í og steikið í 2-3 mín í viðbót.

Bætið currypaste, grænmetiskrafti og tómatpúrru út í og hrærið.

Setjið að lokum kókosmjólkina og vatnið út í og látið nú sjóða í 12-15 mín eða þar til grænmetið er eldað í gegn.

Ef ykkur finnst vanta meiri vökva í súpuna getið þið bætt við kókosmjólk eða vatni eða tómatpassata.

Á meðan súpan en að malla er gott að steikja laukinn og paprikuna, leyfa því að verða gyllt og sætt.

Bætið sítrónubátunum út á pönnuna með lauknum og paprikunni og leyfið að vera í nokkrar mínútur.

Setjið súpuna í skálar og toppið með laukblöndunni, ferskum kóríander og ristuðum kasjúhnetum.