Kúrekakássa úr kjúklingabaunum

Pottréttir Sumar

  • Auðvelt
  • Kúrekakássa
  • Vegan: Já

Uppskrift

Einföld máltíð sem er sniðug þegar við viljum eitthvað fljótlegt en gott. Til dæmis tilvalið að græja í útilegu yfir prímusnum.Gott að bera fram með góðu brauði, t.d. naan brauði, pítubrauði eða í vefju.


  • ólífuolía til að steikja upp úr (notið olíuna sem grilluðu paprikurnar eru í)
  • 1 rauðlaukur, afhýddur og skorinn í sneiðar
  • 5 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð
  • 2 msk tómatpúrra
  • 1 krukka grilluð paprika í ólífuolíu Ítalía, bæði paprikan og hluti af olíunni
  • 1 krukka soðnar kjúklingabaunir
  • 10 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
  • 1 tsk sjávarsaltflögur1
  • 1 tsk cuminduft
  • ½ tsk reykt paprika
  • ½ tsk chiliflögur
  • nokkur mintulauf eða annað ferskt krydd

Uppáhalds grilluðu paprikurnar okkar eru frá Ítalía, merki sem fæst í Bónus og Hagkaup.

Byrjið á að sigta olíuna frá grilluðu paprikunni. Við notum olíuna til að steikja upp úr og paprikuna í réttinn.

Hitið olíuna á pönnu, steikið lauk og hvítlauk þar til liturinn verður gullinn, eða í um 5-8 mínútur.

Bætið tómatpúrrunni út á og leyfið að malla í 1 mín.

Setjið grilluðu paprikuna, kjúklingabaunirnar, kirsuberjatómatana og kryddið út á og látið malla saman í 5-6 mínútur.

Grófsaxið mintulaufin og bætið út á og berið fram. Mjög gott með naan brauði eða pítubrauði eða vefju.

Ef þið ætlið að galdra þennan rétt fram í útilegu er sniðugt að mæla kryddin heima, blanda saman og setja í litla krukku til að taka með.